þriðjudagur, maí 22, 2007

Er nú komið gott?


Jæja, þá kom að því að það kom ný færsla. Búinn að vera lengi á leiðinni að smella einhverju hérna inn, en bloggerinn er búinn að vera við sama heygarðshornið, alltaf jafn óskemmtilega leiðinlegur. Þannig ég hafði samband við engil internetsins, Andra nokkurn Húgó og hann reddaði þessu fyrir mig með myndarbrag. Annars er lítið að frétta hjá mér, búinn í prófum og ein einkun búin að skila sér og er ég nokkuð sáttur við 8 þar. Er búinn að vera í eyjum í sirka mánuð að leysa móður mína af og fer svo til RVK núna á föstudaginn að byrja í nýrri vinnu. Þannig að Zindrinn er bara nokk sáttur þessa dagana, fyrir utan að það er einhvað fjandans suð í hausnum á mér, sem er alltaf að segja mér...segja mér að drepa...drepa...hvali!!

þriðjudagur, ágúst 22, 2006

Merkilegt nokk...

Nú þegar upptökupróf eru hafin þá virðist athyglisgáfan dvína, allt verður einhvernveginn áhugaverðara en prófefnið. Í um daginn stóð ég mig að því að vilja frekar vaska upp eða skúra heldur en að lesa fyrir próf og þykir mér þá fokið í flest skjól. En hvað er verst við þetta allt saman er að tölvan tekur frá manni dýrmætan tíma og þá helst helvítis youtube sem er snilldar vefur, en skelfileg freisting í próflestri.
En þar sem þjóðarinn fór heldur grátt með lifrina mína sem og önnur líffæri, þá tók ég þá ákvörðun að fara ekkert út á menningarnót því ef ég hefði gert það þá væri ég að öllum líkindum þunnur ennþá. En þó að þjóðarinn hafi farið svo illa með ungan feitan mann sem mig, þá skemmti ég mér nú bara ágætlega og þá sérstaklega á föstudeginum þegar ég og Guðmundur "Fermíla" framkvæmdum félagsfræðilega könnun á því hvort það væri mikil andúð gagnvart rauðhærðum eða ljóshærðum blökkumönnum á Íslandi. Við kumpánar fengum þær niðurstöður að engir fordómar væru við lýð, en því miður týndust allar ritaðar niðurstöður er við fórum og fengum okkur pulsur.
Þegar prófum líkur hef ég verið að velta fyrir mér hvort maður ætti að fá sér í glas, könnun á því er þegar hafin og vil ég biðja þáttakendur að rita í comment listann hvað þeim finnst um þessar vangaveltur. Einnig þætti mér vænt um að fá hugmyndir að því hvað ég ætti að sötra þegar ákvörðun hefur verið tekin.

Með fyrir fram þökk.
Dr. Zindri Freyr Ragnarsson mannefldarefnfræðingsfyriráætlanafyrirblökkumennogfleirimennog konurí....


föstudagur, júní 30, 2006

Á meðan ég man...

Í tilefni titils seinasta pósts þá fór ég að hugsa, hver man ekki eftir því í gamladaga í skátunum eða bara í gönguferðum þegar maður bjó til vörður eða súrraði saman spýtur? Alla vega ekki ég, þar sem ég var lítið virkur í skátunum og jahh...bara kunni ekki að súrra saman eitt né neitt...átti í mesta basli með að læra þessa fjárans hnúta...nema kannski jarðaberjahnútinn, en það er allt önnur saga. En ég fór í gönguferð um daginn, sem er ekki í frásögu færandi nema ég var orðinn ansi þreyttur snemma i göngunni sökum offitu vandamáls, þannig að ég tyllti mér niður í grasið þar sem ég var staddur. Ég fór að horfa á fuglana og velta fyrir mér hvað það væri nú gaman að geta flogið, en svo varð mér óglatt því ég er svo skelfilega lofthræddur. Ég hætti að horfa á fuglana og fór að svipast um og sá fullt af litlum steinum í kringum mig, mér fundust þessir steinar afar merkilegir því þeir voru nánast algerlega kúlulaga. Ég fór að týna upp þessa steina og safna þeim saman í hrúgu. Síðan þegar ég var kominn með nóg af steinum þá fór ég að hlaða vörður úr þeim og líka að byggja eitt og annað skemmtilega. Þarna var ég búinn að dunda mér í sólinni í drykklanga stund þar til ég heyri fyrir aftan mig:"Þú veist að þú ert að leika þér með lamba kúk." Ég lít við og sé 2 krakka á aldrinum 5-7 ára. Ég horfi vandræðalega á þau í smá stund og hendi svo steinunum í þau og hleyp í burtu.
Ég fer sko ekki út að labba í bráð, maður gerir sig alltaf af einhverju fífli þegar maður er útí náttúrunni.

föstudagur, júní 23, 2006

Vörður!!!

Það var víst ekki það mikil múðsík í loftinu, blogger drasl er ógeðis og gerir ekki það sem að ég vill að það geri og þegar það gerist þá drep ég eitthvað....eða hendi því útum gluggann...en hvað um það...hér sit ég í vinnu minni að skanna inn myndir og setja inn hnit...svaka stuð...ræð mér vart af kæti...
Helgin að byrja og ekkert í bígerð, og þó...árgangsmót hjá ´82 árgangnum...og þá verður mjög líklega mikið húllum hæ og alveg pottþétt Andri Hæ!!!! en annars er ég bara að verða brúnn og sætur, eða öllu heldur brúnn og sætari...fólk alltaf að segja mér að raka mig og ég segi þá bara:"Fokk off! Mitt andlit, mitt skegg!" annars þarf ég að fara að snyrta það aðeins...orðið soldið svona kljént...annars bara fruss í bala og kannski líka bara með rollu í eftirdragi...kann ekki að blogga lengur...

þriðjudagur, maí 30, 2006

Það er múðsík í loftinu!!

Til að friða þá sem engan frið hafa þá hef ég ákveðið að búa til lista og færa hann sem friðargjöf í anda friðartíma á friðarstundu...eða jamm...ég var víst klukkaður!!

1. Með hvaða hljómsveit eða flytjanda áttu flestar hljómplötur?
Jah, átti mest með Guns´n Roses og Metallica hérna í denn en svo var þeim stolið úr bíl bróður míns ásamt geislaspilara og fleiru. Á eiginlega bara einhverja samsuðu að allskonar dóti núna, held samt mest
Bowie og já The Doors vínil safnið mitt maður! Á líka eðal vínilplötur með Gylfa Ægis, geri aðrir betur!!
2. Hvað var síðasta lagið sem þú hlustaðir á?
Götu ein dag eftir Eivöru Pálsdóttur, eðal lag þar á ferð og eðal söngkona einnig.
3. Hvaða hljómplata er mest á fóninum hjá þér þessa dagana?
Jahh, hlusta lítið á plötur en er með playlista á iTunes og þar er mest að finna David Bowie, Leonard Cohen, Tom Waits, George Clinton & Parlament Funkadelics, Einstuerzende Neubauten og Pink Floyd. Bara svona samsuða af minni uppáhalds múðsík!
4. Spilarðu á eða langar þig að læra á eitthvað hljóðfæri?
Jah, er með grunnstig í söng, en langaði hér í denn að læra á trommur. Síðan heillaði saxafónninn mig, einnig langaði mig að læra á selló í smá stund. Einnig get ég blásið nokkra tóna á diggerídú!!




mánudagur, apríl 24, 2006

Þegar maður verður stór...

margt gerist í þessum brjálaða heimi og enginn getur séð það fyrir, jahh nema kannski Gunnar í krossinum hann er með þetta allt á hreinu...en allavega þá hefur margt gerst sem ekki á að hafa gersta, nazistar frömdu þjóðmorð, kristnir menn drápu menn og aðra í nafni guðs, múslimar fremja hryðjuverk og einhver stal kökunni úr krúsinni í gær...
hefði verið hægt að koma í veg fyrir þetta? ég veit það ekki...en hitt veit ég að ef ég hefði ekki borðað kerti og drukkið kaffi þegar ég var lítill...eða uhh minni, jah þá hefði ég orðið hærri en 1.72 1/2 m að hæð svo mikið er víst...

fimmtudagur, mars 02, 2006

Kirkjuþing alheimsins...

Þar sem maður er nú í guðfræði þá verður manni oft hugsað til trúarinnar. Jón Gnarr er duglegur að skrifa pistla í Fréttablaðið og eru þeir mis góðir hjá honum, en oftar en ekki eru þeir mjög hlaðnir trúarlegum pælingum. Það er allt gott og blessað, trúin getur gert fólki mjög gott svo framarlega að hún verði ekki að þráhyggju. En eitt mál hefur brunnið mikið á vörum fólks að undanförnu, en það eru giftingar samkynhneigðra. Hinir íhaldssömu trúhópar sem vilja túlka hina helgu bók út frá orðinu vilja meina að það sé ekki guðs vilji að veita blessun sína á þeirra hjónaband, en hinir frjálslegu söfnuðir sem vilja lesa á milli lína bókarinnar góðu telja að um misskilning sé að ræða á túlkun Biblíunnar og að samkynhneigðir eigi fullan rétt á guðslegri blessun. Hef ég heyrt mörg góð rök með eða á móti giftingum samkynhneigðra og hefur mér þótt erfitt að taka eigindlega afstöðu í þessu máli. Sjálfur er ég ekki mjög trúaður (þó svo ég sé í guðfræði), ég hafna ekki trúnni en kaupi hana ekki hráa heldur. Ég fór í guðfræði til að reyna að skilja trú og trúarbrögð. Ég er nú ekki kominn langt áleiðis í náminu, en hef orðið margs vís á þeim tíma sem ég hef stundað þetta nám. Ég hafði aldrei í hyggju að gerast prestur eða djákni, heldur ætlaði ég að færa mig um set og leggja stund á mannfræði eða fornleifafræði. En svo fór ég að hugsa, þar sem þessi klemma hefur myndast í hinum kristna heimi og að ég held að flestir kristnir einstaklingar vilji ekki kaupa giftingu samkynhneigðra hví stofna samkynhneigðir ekki eigin kirkjudeild?

Biblían er trúarrit sem er hægt að túlka á svo margan hátt og vilja allir meina að þeir hafi rétt fyrir sér. Nú vilja ýmsir sagnfræðingar, nýja testamenntisfræðingar, fornleifafræðingar og fleiri fræðingar meina að túlkun samkynhneigðar í nýja testamenntinu hafi verið misskilin. Helst er minnst á samkynhneigð í Guðspjalli Páls og telja þessir fræðingar að Páll hafi verið að tala gegn misnotkun á þrælum, börnum, nemendum og fleira þess eðlis.

Þegar ég fór að velta þessu fyrir mér komst ég að því að trú er líka fín gróðamaskína. Með því að veita alla þá þjónustu sem kirkjan veitir er hægt að græða þó nokkurn pening. Kom þá upp í huga mér snilldar hugmynd, hví ekki að stofna Kapítalísku Kirkjuna! Þar er hægt að braska ýmislegt skemmtilegt. Maður getur gerst sponsor á ógæfu sálir, keypt hlutabréf í himnaríki Hf. í gegnum KB banka, stofnað fjarskiptafyrirtæki í gegnum heilagan anda, selt vígt vatn til þriðjaheims ríkja sem og annara ríkja og landa (nóg er nú af vatni á landi ísa), jafnvel gengið svo langt að bjóða uppá heilagan spíra við altarisgöngur (ef Murtan yrði ekki trúuð við það þá skal ég hundur heita), boðið uppá pakka tilboð; gifting, skilnaður og jarðaför 2 for the price of 1 og ég veit ekki hvað og hvað. Svo geta bankarnir og KK farið í góðan buisness saman og gert fermingarbörn að helsta markaðshópi:"Ef þú hleypir Kristi inní líf þitt, þá eignastu hlutabréf á himnum!" Og þar sem hin Kapítalíska Kirkja segir ekki nei við peningum og býður alla velkomna þá að vitaskuld veitir hún blessun sína á giftingu samkynhneigðra. Hin Kapítalíska Kirkja mun reyna að frelsa alla undan oki misréttis og græða pening í leiðinni. Kapítalíska Kirkjan yrði einskonar andlegur banki. Mammon dýrkun, perhaps but money makes the world go around, for now at least...

Myndi þetta ganga upp? Efast um það...og þó! Margt geðveikara hefur nú verið gert í nafni trúarinnar, sjáið bara Kaþólikkana!